hæ:D ég hef ótrúlega lítið að segja...en læt á það reyna:Þ bara fyrir Dagný ;) tilvalið að blogga núna þar sem ég á að vera að pakka niður jújú bæði fyrir flutning og útlandaferð, erum að fara að flytja á morgun, og svo er heiðar að fara til kanada á mánudaginn ..allt að gerast! verðum 2 eitthvað að dúllast mæðginin í nokkra daga, þannig að þið megið allveg búast við okkur í heimsókn, hvar á landinu sem þið búið ég er búin að "plana" kringluferð ætla að fara að versla á snúllann föt, í NEXT..pott þétt!! húsið okkar er í byggingu, þó svo að enginn muni skilja þegar ég segi eitthvað frá því þá eru samt sem áður komnir sökklar, og platan verður bráðum steypt, svo þegar heiðar kemur heim þá fer hann að hlaða húsið mig hlakkar ótrúlega til að fara til dagnýar, eða hún til mín, allt of langt síðan ég sá þig :(..ert alltaf að læra má eiginlega ekki vera að þessu lengur...verð að pakka meira! en ég á skilið hrós fyrir þessa færslu..right?? ....dagný eigum við að prufa myspace?? vera ótúlega asnalegar hehe ble Sædís
21. apríl 2007 klukkan 11:11
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 1 athugasemd
hæhæ góða fólk. smá breyting var gerð a siðunni. Vona að allir séu ánægðir með það (eða þið örfáu sem lesið) vona sérstaklega að sædís verður ekki fúl.... ? að ég tók bara út mig og alex mána... ég bara elska þessa mynd sem ég setti inn reyndar að sjálfsögðu elska ég líka allar myndir af mér og alex og sérstaklega alexi bara. en þeir sem þekkja mig vita að ég er með breytingaræði á útliti. og langaði að breyta til allavega var að heyra að bloggsíður eru bara fyrir litlu börnin ????? fullorðnir eru víst á myspace??? er það bara málið? á ég bara að fara í heim myspaceins??? það virðist sem allir eru þar... það er spurning commentið og segjið ykkar álit? bloggheimur fyrir börnin? myspace fyrrir fullorðna??? seinna blogga ég almenninlega
Dabba Sibba Labb
14. mars 2007 klukkan 11:30
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 7 athugasemdir
vil óska minni yndislegri frænku til hamingju með með 20 ára afmælið. Ég vona að hún eigi góðan dag með öllu gómsætinu sem hún ætlar að bjóða upp á, ég vona að ég komist í kvöldkaffi til hennar ef skólinn leyfir. Ég er að fara í próf á morgunn og er að reyna að byrja að læra undir það. Þetta er símatsáfangi sem ég er í, sem þýðir að eg verð að ná öllum skyndiprófum :( Ég veit ekki alveg fyrir hvern ég og Sædís erum að halda þetta blogg? fyrir okkur svo við getum lesið af hvor annari en samt tölum við saman á hverjum einasta degi í gegnum msn. Því ekki veit eg um marga sem lesa þetta blogg okkar :S en þið fólk sem lesið bloggið endilega commentið þið og verið soldið lífleg annars er þetta bara glatað að vera að eyða tíma sínum í einhverja sona vitleysu... En að öðru efni. voðalega lítið er að frétta af mér er bara alltaf að læra eins og síðustu önn. frekar leiðinlegt líf. Reyndar var smá tilbreyting þessa helgi í gær var ég og Biddý með sona date day :) það var voða gaman gerðum margt skemmtilegt. m.a fórum að skauta, kaffihús, ljós ( það sem ég brann feitt :( ein sem er ekki vön ljósum lengur) og út að borða þetta var allt mjög skemmtilegt :) Snædís Erla frænka var akkúrat að keppa í handbolta þennan dag mér til mikilla vonbrigða langaði að sjá hana. :( en ég fékk nu aðeins að fylgjast með og stóðu þær sig eins og hetjur og unnu SILFRIÐ :) til hamingju Snædís :* og áfram Grótta :) HM er í fullum gangi og finnst mér það mjög skemmtilegt er mjög ánægð með strákana :) en samt er þetta soldið erfitt þar sem allir kennarar eru alltaf með próf ákkúrat á HM tíma :( ömurlegt.... sunnudagar og mánudagar eru leiðinlegustu dagar í heimi að mínu mati og er ég mjög oft í vondu skapi á þessum dögum :( þannig að ég ætla að segja þetta gott núna (ætla reyndar að reyna að setja inn nokkrar myndir) allir að kvitta fyrir sig og / eða commenta takk
28. janúar 2007 klukkan 19:02
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 7 athugasemdir
nú er komið jólafrí og ég vel skipulögð eins og alltaf ég veit ekki hvað ég mundi gera ef dagbækur væru ekki til? prófin gengu vonum framar er ég búin að fá einkunnir og voru þær ágættar fékk 7 í stærðfræði sem var lægsta einkunninn og er það geggjað er ógeðslega hamingjusöm að ég náði stæ.prófinu á á ég nokkrum að þakka það :) m.a honum magga. ég samdi ljóð til hans hér á síðunni í einni færslunni síðan í gær fór eg og færði honum rauðvinsflösku í þakkarskuld fyrir góða kennslu. En sú sem stóð mér mest við hlið í prófunum var Biddý mín hún var YNDISLEG:) í prófum gerbreyttist ég í tryllt dýr ég er ekki skemmtileg, góð, hamingjusöm, fyndin, sæt eða ekkert ég er allt sem enginn vill vera eða þekkja!! en biddý tók mér eins og ég var og gerði ALLT til að hjálpa mer!!! gæti þið hugsað ykkur betri manneskju?? þannig að í gær gaf ég henni voða flotta húfu sem henni langaði í til að þakka henni fyrir mig :) takk elsku Biddý þú ert yndislegust ég er búin að kaupa allar jólagjafirnar minnir mig eina sem er eftir er að hitta alla elskulegu vini mina og fjölskyldu sem er vel bókað alla næstu viku. svo koma bara blessuð jólin..... ég og biddý verðum i sitthvoru lagi eins og á siðustu jolum hun i eyjum og eg í hafnarfirði mér kviður ogeðslega fyrir því og finnst það ömurlegt :( en einhverjar bjartar hliðar eru þó á þessu leiðulegu hliðum og þær eru þær að við förum saman til ísafjarðar til pabba 2.jan og hlakkar mer mjööööög mikið til :) þið sem ætlið að djamma af ykkur rassgatið í jólafríinu hringið í mig kannski að mer langi til að slást í hópinn og hrista á mer rassinn!!! því eftir áramot hefst skólinn og ef skolinn verður hja mer eins og a siðustu önn þa verður ekki mikið um djamm !!! nuna i jolafríinu ætla eg annaðhvort að brosa og skemmta mer þvi það eru bara jol einu sinni á ári en mer vantar smá félagsskap til að geta brosað með.... hitt valið er að vera í fýlu bara.... allaveganna hlakkar bara til jólanna fyrir utan að biddy fer fra mer :( og hlakkar enn meira til áramótanna :D kannski er tjútt í kvöld hver veit???
17. desember 2006 klukkan 00:15
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 6 athugasemdir
allir eru með leiðinlegar spurningar a siðunum sinum sem ég er komin með ógeð af..búin að svara þeim svo oft... svo ég fann flottari ..svona fyrir þessa báða þrjá sem skoða bloggið hahaha...ég, dagny og gudda lesum mínar færslur en þeir sem eiga blogg sem ég svaraði spurningum á...þau hafa engra kosta völ..þið svarið!! ...erfitt að skrifa með einari hendi...snúlli sefur á hinni..hann sem sefur aldrei i fanginu a mér ...svo vel uppalinn jæja hér kemur þetta:
1. Nafn þitt? 2. Hvar kynntumst við? 3. Hvað er miðnafnið mitt? 4. Hefurðu hitt mig? 5. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er? 6. Hversu lengi hefurðu þekkt mig? 7. Hversu vel þekkiru mig? 9. Trúi ég á Guð? 10. Hvað Hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig? 11. Aldur minn? 12. Afmælisdagur? 13. Háralitur? 14. Augnlitur? 15. Á ég systkini? 16. Hefuru nokkru sinni öfundað mig? 17. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera? 18. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig? 19. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á? 20. Hver er minn besti eiginleiki? 21. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn? 22. Er ég fyndin/nn? 23. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum? 24. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika? 25. Spila ég á e-ð hljóðfæri? 26. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera? 27. Höfum við kysst? 28. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni? 29. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 30. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast? 31. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman? 32. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni? 33. Hvaða vin held ég mest uppá? 34. Hef ég hjálpað þér? 35. Hefur þú hjálpað mér? 36. Þykir þér vænt um mig? 37. Er ég sannur vinur? 38. Elskarðu mig? 39. Langar þig að faðma mig? 40. Langar þig að kyssa mig?
þið munuð öll deyja! ....þannig er það nú bara krakkar mínir! ég lofaði ógeðslega mikið upp í ermina á mér í gær þegar ég lofaði að blogga...ég hef voðalega lítið að segja nefnilega svo það getur ekki verið gaman að lesa þetta.... kann bara að skrifa á barnalandi því það er alltaf svo mikið að gerast hjá fallega syni mínum, en dagarnir hjá okkur einkennast nú bara af því að leika...hann sefur samt voða mikið og þá bara hangi ég e-ð...ætli það sé því ég er leiðinleg? er farin að hætta að trúa því að börn geta sofið svona mikið..þetta er ótrúlegt sko! en dagurinn í gær varð nú örlítið öðruvísi en allir hinir dagarnir jújú við fórum í höfuðborgina við fallega familyan sönsuðum aðeins fyrir bróðir minn og mágkonu, fórum svo til dagnýar og gleymdum okkur aðeins þar heh...svo í hagkaup, krónuna, KFC og heim ..ég er hætt að geta farið í bæjinn án þess að koma við á KFC kúra lúra liggalopp já þvílíkt og annað eins riggarobb...þetta lag er í sjónvarpinu núna...paparnir eru heví fyndnir hvað getur maður gert þegar allir skápar og ískápur og frystir er fullt af MAT?? ...ég er búin að liggja yfir þessu síðan í gær Alex var að fá hoppurólu í láni hjá Beggu...og það er svo fokkin fyndið að sjá han í þessu...ég veltist alltaf um af hlátri ...hann snýr alltaf öfugt eða sko...vill ekki snúa fram heldur vill bara snúa baki í mig og horfa inní forstofu Hann varð formlega STÓRI frændi um daginn þegar Margrét Egilsdóttir og Guðjón uhh....bara.jónsson? eignuðust son vill bara óska þeim innilega til hamingju og góðs gengis í framtíðinni mæli eindregið núna með því að fólk fari bara núna og vindi sér í barneignir...þetta er svooo frabært! þið getið sko ekki ímyndað ykur...að halda lífi í lítilli mannveru sem kæmist ekki af án mín..eða jújú kæmist allveg af...mundi nú allveg treysta heiðari hehehe en sko...móðir er móðir...þetta er bara það besta sem hefur komið fyrir mig og við elskum hann mest í öllum heiminum ég segi alltaf við hann á hverju kvöldi áður en ég legg hann í rúmið sitt "mamm elskar þig mest í heiminum...til tunglsins og til baka..og miklu meira en það, góða nótt ástin mín og sofðu rótt:* :* :* :* :* :* :* :* " svo bíð ég í smá stund því ég tými ekki að slepa honum frá mér heheh... en ég er farin að vera væmin...og eins og þið sjáið...þá skeður lítið annað í mínu lífi...eina sem ég geri er að vera móðir! og það dugar mér fullkomnlega erum að fara í mat til mömmu á morgun...get ekki beðið eftir að fá mömmu mat jæja...hættt þessu...læt mynd fylgja með til að sýna hvað við mæðginin erum góð saman og elskum hvort annað mikið
úff hvað ég er búin að monta mig nóg! jæja dagný er þessi færsla nóg fyrr þig?? bless! Sædís
25. nóvember 2006 klukkan 20:08
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 3 athugasemdir
þessa önn var ég í stærðfræði. sem er mjög erfið og eg hef ekki skilið eitt dæmi. Fór í tvo próf og ætla ekki að segja hvernig gékk. allaveganna þá áttaði ég mig sem betur fer að ég þyrfti að fa hjalp ef ég ætlaði að ná áfanganum ég talai við Magga minn :)
nú ætla ég að hrósa Magga : maggi er góður strákur, þolinmóður, elskulegur, lætur mig læra, kennir mér, er klár, vitur, myndarlegur og skemmtilegur :) maggi er búinn að koma og hjálpa mér tvisvar og ég er bara orðin nokkuð ágætt vona ég :)
hér er ljóð fyrir Magga:
maggi minn þú ert klár á veginn þinn hjálparinn minn yndisþokkinn þinn
vá hvað ég er væmin... en maggi er bara so frábær að ég varð að deila þessu með ykkur hann hefur sko kennt mer helling í rúmfræði (stærðfræði) allt sem ég kann... ég er mjög þakklát og ef ég næ prófinu!! þá fær maggi eittthvað skemmtilegt í gjöf
vá hver hefði trúað hvað ég er góður bloggari þið hafið ekki undan að lesa bloggin min er ógeðslega ánægð með ykkur hvað þið commentið vel haldíð þessu áfram þá verð ég og SÆDÍS duglegar að blogga þurfum bara aðeins að sparka í rassgatið á henni
24. nóvember 2006 klukkan 21:10
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 3 athugasemdir
vá allur þessi snjór. ég elska snjó en ég þoli ekki að keyra í honum. ég er ekki góður snjókeyrari og mér finnst allir keyra eins og bjánar í reykjavík. ég festi mig allavegana einu sinni í hvert skipti sem ég keyri af stað svo spóla ég eins og vitleysingur og eyði fínu dekkjunum mínum á flottu álfelgunum :) mér er alltaf svo kalt líka. ´ skólinn er að verða búinn, þessi vika eftir og mánudagurinn næsti og svo taka við prófin eg fer í 6.lokapróf öll mjög erfið. mér kvíður mjög fyrir þeim. ég er ekki sú allra skemmtilegasta hef ég heyrt þegar ég er stressuð... þannig ef einhver vill tala við mig þegar ég er í prófum þá má hann vara sig. en ef einhver kýs að tala bara við mig eftir prófin þá eru þau búin 12.des :) 12.des þá fer ég í jólafrí vá get ekki beðið hlakkar svo til :) samt leiðist mer allur jolaundirbúningur... allir svo stressaðir að keppast við timann og að kaupa allt. ég sting uppá að einhver bíður mér í jólaföndur og jólaspil :) það gerir jólalega stemningu og kæti:)
en já þetta nýja blogg okkar sædís finnst mer ekki alveg vera að virka. það commentar engin og fáar heimsóknir. veit engin nýju siðuna okkar eða erum við bara leiðinlegar? allavegana í fyrsta skipti á ég meira í bloggi en þú.... ég er búin að blogga tvisvar núna þú aldrei og ég er búin að láta inn GOMMU AF MYNDUM Sem tók mikin tíma og kostaði blóð svita og tár... nú vil ég sjá að fólk skoði og commenti... annars fer ég í fýlu :( grínlaust vá hvað þetta tók á að láta allar þessar myndir inn... en endilega commentiði og skoðið myndirnar... myndirnar eru mjög skemmtilegar og ágætar!!!
21. nóvember 2006 klukkan 22:20
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 9 athugasemdir
sædís prýður forsíðuna hér. þar sem ég lét upp þessa síðu er hún engan vegin í lagi og langt í frá að vera tilbúin. Ég er búin að missa þolinmæðina á henni. síðan verður i vinnslu i svolitin tima... þar til ég verð komin með nógu mikla þolinmæpi að klára hana eða hin ástkæra Sædís mun aðstoða mig :)
16. nóvember 2006 klukkan 23:18
Dagný Sif Snæbjarnardóttir 2 athugasemdir